1. |
ómægad ég elska þig
03:59
|
|||
ástin er svo mikil subba
hún tekur aldrei til eftir sig
og nietsche sagði að ástin væri dauð
en hann hitti aldrei neinn eins og þig
ást mín er appollo geimfar
þú býður mér aldrei með í kassavals
dansaðu bara í stofunni see if i care
þú drekkur bjór hraðar en allir
-já ég veit ég er að vinna í mínum málum!!
að kyssa þig er þriðjudagstilboð
að kyssa þig er þriðjudagstilboð
að kyssa þig er þriðjudagstilboð
að kyssa þig er þriðjudagstilboð
þú ert bara poki af kjöti
og blóði
heilinn þinn er aðallega brjósk
en ómægad ég elska þig
þetta gerðist alveg óvart
því þú, já þú, ert sófinn minn
-er ég bara húsgagn fyrir þér?!
að kyssa þig er þriðjudagstilboð
að kyssa þig er þriðjudagstilboð
að kyssa þig er þriðjudagstilboð
að kyssa þig er þriðjudagstilboð
-Ert þú líka að ríða manni frá Siglufirði?
að kyssa þig er þriðjudagstilboð
að kyssa þig er þriðjudagstilboð
að kyssa þig er þriðjudagstilboð
að kyssa þig er þriðjudagstilboð
|
||||
2. |
Fugl og fiskur
03:16
|
|||
Ég munda herðablöðin
teygi út hendurnar
anda djúpt, vöðva kreppi
spyrni og tekst á loft
Stíg upp á ógnarhraða,
vöðvaminnið tekur við
Beygi mót víðáttunni
klóra í háloftin
Því ég er skýjakljúfur
það rignir ljósi’ í nótt
flug mitt er óstöðvandi
hispurslaust hverf ég brott
Fiskur veit ekki,
hvað eldur er,
en fuglinn,
hann veit það
Því ég er skýjakljúfur
það rignir ljósi’ í nótt
flug mitt er óstöðvandi
hispurslaust hverf ég brott
Stjörnurnar sem við gripum í gær skildu eftir sig brunasár í lófanum. Ég reyni að láta kalt vatn renna yfir þau en roðinn hverfur ekki og mig svíður.
Þegar nóttin hætti að vera dökkblá sáum við hjarta sem lá yfirgefið á veginum. Plaststrá flöktuðu í vindinum og þú varst með eitthvað á andlitinu.
Við hnoðuðum það þangað til það fór að kasta upp. Svo steig það upp í hvítan fólksbíl og keyrði burt án þess að þakka fyrir sig.
Rauðar línur og svefnleysi í andlitinu. Hálfnakin tilfinning.
Ég gekk afturábak alla leiðina heim og hugsaði um hvað það hlyti að vera gott að búa neðansjávar.
Svo klæði ég mig úr skónum.
Fiskur veit ekki,
hvað eldur er,
en fuglinn,
hann veit það
|
||||
3. |
Stelpnakjöt
03:12
|
|||
Er hjartað úrelt líffæri,
taktu púlsinn hvernig hljóma ég?
Plokkaðu æðastrengi mína,
leggðu svo við hlustir
Flóka sem er ekki hægt að leysa
þarf að klippa burt
Stráðu salti í sárið,
helltu tekíla í sárið
kreistu sítrónu í sárið
---
En ég er veiðimær, með vopn í hönd,
grimm og óaðgengileg
Orðið á götunni bergmálar:
,,Stelpnakjöt er langbraðbest”
En salt er bara þurrkaður sjór,
stráðu honum öllum í sárin mín
Stráðu salti í sárið,
helltu tekíla í sárið,
kreistu sítrónu í sárið
---
En englabaugur þinn skyggir á mig,
ég er hreistruð, logakysst
húðin mín er steingervð, á mér hvílir þak
Ég er fjögurra stólpa hof.
Snúðu‘upp á hjartavöðvann
Vindu úr því blóðið
Stráðu salti í sárið,
helltu tekíla í sárið,
kreistu sítrónu í sárið
|
||||
4. |
fjárhagslegt öryggi
02:57
|
|||
Heimurinn minn
er appelsínugulur sunnudagur
og þú
ert að öskra á mig
ég elska hljóðið
sem nýrun gefa frá sér
þegar þú ert reiður
Ég veit að það eina sem við gerum
er að rífast um brauðrist
eða ristavél
en mér finnst samt
að við ættum að kaupa
íbúð að saman
Ég er fljúgandi bleikur fíll
þú ert skríðandi moldvarpa
en ég elska þig samt ….
|
||||
5. |
Glúbb
04:43
|
|||
Gengur greitt á hælaskóm
Um tóma breiðgötu
Umhverfis er skuggatóm
Og regnið skellur hart
Hún er dálítið græn hrúga af holdi
Með risavaxinn barðahatt og perlueyrnalokk
Fiskar upp úr vasanum
Stóra orðabók
Doðrantur með gylltan kjöl
Íslensk-glúbbídúbb
Glúbbglúbbdídúbbdúbbdíbúbb...
Opnar hana í G-inu
Flettir einhverju upp
Rýnir fast í síðurnar
Í flýti, hvar er það?
Grænir fingur fikra sig um fölan pappírinn
Finnur loksins orðið sem hún var að leita að
Glúbbglúbbdídúbbdúbbdíbúbb...
Heyrir berast dimma rödd
Úr húsaskuggunum
Sekkur svo í malbikið
Og syndir fljótt á brott
Glúbbglúbbdídúbbdúbbdídúbb...
|
||||
6. |
Horgemlingur
03:04
|
|||
Úti dynur kallt veinið
og regnið sker rákir á vindaugað
Vinin er vikurrauð að sjá
og gleypir líflosta
innan bíður horgemlingur
strýkur rifin blá
hann tætir hár á höfði sér
og brosir út í myrkrið
Nartar örlítið í litlu tá,
þá fingurgóma fjóra
því baugfingur hefur hann kroppað upp
til agna
Eftir stendur stúfurinn einn
Garnir þykja gólf og veggi
Hann hleypir bölinu inn og hlær
svo beinin skrika til
undir lausri húðinni
Mikið er gott að vera til!
mikið er gott…
Nartar örlítið í litlu tá,
þá fingurgóma fjóra
því baugfingur hefur hann kroppað upp
til agna
innan bíður horgemlingur
strýkur rifin blá
hann tætir hár á höfði sér
brosir út í myrkrið
Mikið er gott að vera til
|
Streaming and Download help
If you like Ólafur Kram, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp